Íslenski boltinn

Jóhann Kristinn tekur við Völsungi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jóhann Kristinn við undirskriftina í kvöld.
Jóhann Kristinn við undirskriftina í kvöld. mynd/volsungur.is
Jóhann Kristinn Gunnarsson lét af störfum sem þjálfari kvennaliðs Þórs/KA á dögunum en hann er kominn með nýja vinnu.

Jóhann var í kvöld ráðinn þjálfari 2. deildarliðs Völsungs. Jóhann Kristinn er Húsvíkingur og er því tekinn við sínu heimaliði. Það er 640.is sem greinir frá.

Hann tekur við Völsungsliðinu af Páli Viðari Gíslasyni sem hefur róið á önnur mið eftir tvö ár í starfi.

Jóhann Kristinn mun einnig sjá um afreksþjálfun félagsins og mun koma að þjálfun yngri flokka. Hann mun þess utan sjá um utanhald á 2. flokki karla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×