Bíó og sjónvarp

Jóhann Jóhannsson semur tónlistina fyrir næstu mynd Aronofsky

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jóhann Jóhannsson tónskáld mun semja tónlistina fyrir næstu kvikmynd bandaríska leikstjórans Darren Aronofsky en á meðal þeirra sem fara með hlutverk í myndinni eru þau Jennifer Lawrence, Javier Bardem og Ed Harris.

Jóhann hefur samið tónlist fyrir fjölda kvikmynda og hlotið mikið lof fyrir en hann hlaut meðal annars Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í myndinni The Theory of Everything auk þess sem hann var tilnefndur til Óskarsverðlauna.

Greint var frá samstarfi þeirra Aronofsky og Jóhanns í kvöldfréttum RÚV en Aronofsky hlaut í dag heiðursverðlaun RIFF fyrir framlag sitt til kvikmyndagerðar en Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitti Aronofsky verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum.

Aronofsky stefnir á að frumsýna myndina á næsta ári en hún hefur ekki fengið nafn enn og er einfaldlega kölluð „Untitled Darren Aronofsky Project“ á kvikmyndavefnum IMDB. Aronofsky er einn virtasti kvikmyndaleikstjóri í heimi en hann á baki myndir á borð við Requiem for a Dream, Black Swan og Noah sem var einmitt tekin að hluta til hér á landi.

Í viðtali við RÚV sagðist Aronofsky stefna á að taka upp aðra mynd hér í framtíðinni og að hann geti ekki raun ekki beðið eftir því að koma hingað til að taka upp.


Tengdar fréttir

Heiðursverðlaun RIFF afhent í tíunda skiptið

Heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, verða afhent í tíunda sinn í dag. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri afhendir indversk-kanadísku kvikmyndagerðarkonunni Deepa Mehta verðlaunin við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Sundáhrif Sólveigar opna RIFF

RIFF verður sett í þrettánda sinn við hátíðlga athöfn í Háskólabíói í kvöld. Opnunarmynd hátíðarinnar er fransk/íslenska kvikmyndin Sundáhrifin eftir Sólveigu Anspach.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×