Íslenski boltinn

Jóhann Helgi verður ekki með Þór gegn FH

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jóhann Helgi Hannesson.
Jóhann Helgi Hannesson. vísir/stefán
KR-ingarnir Grétar Sigfinnur Sigurðarson og Kjartan Henry Finnbogason voru báðir úrskurðaðir í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í dag á vikulegum fundi nefndarinnar.

Það sama á við um Jóhann Helga Hannesson, framherja Þórs, en allir taka út leikbann í næstu umferð vegna fjögurra gulra spjalda sem þeir hafa safnað sér.

Kjartan Henry hefur yfirgefið KR og samið við Horsens í Danmörku, en Grétar Sigfinnur verður ekki með liðinu þegar það mætir Fylki annan sunnudag.

Jóhann Helgi verður ekki með Þór gegn FH í mikilvægum leik á Þórsvellinum sama dag, en Þórsarar eru hársbreidd frá því að falla niður í 1. deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×