Íslenski boltinn

Jóhann hættur með Þór/KA

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari Þór/KA.
Jóhann Kristinn Gunnarsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari Þór/KA. Vísir/Daníel
Jóhann Kristinn Gunnarsson mun ekki stýra liði Þór/KA í Pepsi-deild kvenna á næsta tímabili en þetta kom fram á kaffid.is í gær.

Tilkynnti Jóhann forráðamönnum og leikmönnum liðsins þessi tíðindi í gær en liðið hafnaði í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar.

Jóhann tók við liðinu árið 2011 en undir hans stjórn hefur liðið hafnað í fjórða sæti undanfarin tvö ár.

Undir stjórn Jóhanns varð Þór/KA Íslandsmeistari í eina skiptið í sögu félagsins sumarið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×