Enski boltinn

Jóhann Berg skoraði í tapleik Charlton

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhann Berg í leik með Charlton.
Jóhann Berg í leik með Charlton. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson var a skotskónum í ensku Championship-deildinni í knattspyrnu þegar Charlton tapaði fyrir Wolves, 2-1. Jóhann gerði eina mark Charlton í leiknum en þeir David Edwards  og Adam Le Fondre skoruðu fyrir Wolves.

Björn Bergmann Sigurðarson var ekki með Wolves í leiknum. Toppliðið Brighton & Hove Albion marði sigur á Ipswich, 3-2, í stórleik umferðarinnar.

Brighton & Hove Albion skoraði fyrst tvö mörk leiksins en Ipswich svaraði því næst með tveimur mörkum og jafnaði metin. Tommer Hemed gerði sigurmark leiksins tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Brighton & Hove Albion er í efsta sæti deildarinnar með 13 stig, Hull City, Ipswich og QPR koma þar á eftir með tíu stig.

Hér að neðan má sjá öll úrslit dagsins. 



Derby County 1 - 2 Leeds United

Brentford 1 - 3 Reading

Bristol City 1 - 2 Burnley

Huddersfield Town 0 - 1 Queens Park Rangers

Hull City 2 - 0 Preston North End

Ipswich Town 2 - 3 Brighton & Hove Albion

Nottingham Forest 1 - 2 Cardiff City

Rotherham United 1 - 3 Fulham

Sheffield Wednesday 1 - 3 Middlesbrough

Wolverhampton Wanderers 2 - 1 Charlton Athletic

Milton Keynes Dons 0 - 2 Birmingham City




Fleiri fréttir

Sjá meira


×