Enski boltinn

Jóhann Berg skoraði í fyrsta æfingaleiknum

Einar Sigurvinsson skrifar
Jóhann Berg í leik með Burnley.
Jóhann Berg í leik með Burnley. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson fær mikið lof fyrir frammistöðu sína í æfingaleik Burnley gegn Macclesfield Town. Burnley vann leikinn 2-0 og skoraði Jóhann Berg seinna mark leiksins beint úr aukaspyrnu. Fyrsta mark Burnley skoraði Aaron Lennon.

„Rétt rúmlega þremur vikum eftir að [Jóhann Berg] Guðmundsson var í byrjunarliðinu í 2-1 tapi fyrir Króatíu, vakti hann athygli fyrir stórkostlegt aukaspyrnumark og heillandi klukkustundar frammistöðu,“ segir Chris Broden í umfjöllun Burnley Express um æfingaleikinn, en þar er farið fögrum orðum um Jóhann Berg.

„Á báðum köntum vallarins var frammistaða Jóhanns jákvæð og ákveðin. Hann tengdi vel við báða bakverðina, auk Jeff Hendrick í framlínunni,“ segir í umfjölluninni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×