Enski boltinn

Jóhann Berg með mark og stoðsendingu á Elland Road

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jóhann Berg hefur komið með beinum hætti að 17 mörkum á tímabilinu.
Jóhann Berg hefur komið með beinum hætti að 17 mörkum á tímabilinu. vísir/getty
Jóhann Berg Guðmundsson var í aðalhlutverki hjá Charlton Athletic sem vann 1-2 sigur á Leeds United í ensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Jóhann skoraði fyrra mark Charlton og lagði það seinna upp fyrir Ademola Lookmann.

Íslenski landsliðsmaðurinn hefur skorað sex mörk á tímabilinu og gefið 11 stoðsendingar, flestar allra í deildinni.

Sigurinn breytir þó litlu fyrir Charlton sem er löngu fallið og leikur í C-deildinni á næsta tímabili. Afar ólíklegt verður þó að teljast að Jóhann Berg fylgi liðinu þangað.

Aron Einar Gunnarsson sat allan tímann á bekknum þegar Cardiff steinlá, 3-0, fyrir Sheffield Wednesday á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×