Fótbolti

Jóhann Berg: Forréttindi að byrja

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliðinu gegn Lettlandi.
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliðinu gegn Lettlandi. vísir/anton brink
Ísland mætir Tyrklandi í lokaleik sínum í undankeppni EM 2016. Strákarnir eru öruggir áfram en það er allt undir hjá Tyrkjum. Jóhann Berg Guðmundsson á von á að það verði því mikil og góð stemning Torku Arena í kvöld.

„Við þurfum að njóta þess að spila þennan leik. Við erum komnir á EM og þá getum við bara notið þess að spila þennan leik,“ sagði Jóhann Berg við Vísi í gær.

Fyrirfram reiknuðu fáir með því að Ísland væri búið að tryggja sér EM-sætið fyrir lokaleikina í riðlinum en það varð engu að síður raunin.

vísir/getty
Vilja efsta sætið

„Eins og ég var að segja við strákana þá hefði það verið laglegt að þurfa að koma hingað í lokaleiknum og sækja einhver stig. Það hefði verið ansi erfitt.“

„Það er því frábært að geta farið pressulausir inn í þennan leik. Það er í raun algjörlega magnað og sýnir hversu vel við höfum staðið okkur í undankeppninni. Það eru ekki mörg landslið sem hefðu getað gert það sem við gerðum.“

„En við viljum að sjálfsögðu vinna leikinn og taka efsta sætið í riðlinum,“ bætir Jóhann við.

Ísland er komið á EM og það vita stuðningsmennirnir.vísir/getty
Til í hvað sem er

Hann segir að það sé ljóst að öll lið taki Ísland alvarlega úr þessu. „Að spila gegn Íslandi í gamla daga átti að vera ávísun á þrjú stig hjá stóru liðunum en nú taka þau öll okkur alvarlega.“

„Við sýndum það gegn Hollandi, sem við unnum tvisvar, að það er ekki annað hægt en að bera virðingu fyrir okkur.“

Jóhann Berg hefur spilað á báðum köntum sem og frammi með Kolbeini Sigþórssyni. Það skiptir hann litlu máli hvar hann spilar í dag, svo framarlega sem hann sé inni á vellinum.

„Ég er til í hvað sem er. Það eru bara forréttindi að fá að vera í fyrstu ellefu í þessu liði og ég er til í hvað sem er, hvort sem það er vinstri bakvörður eða eitthvað annað,“ segir hann og hlær.

vísir/anton brink
Hlýtur að detta inn mark

Hann spilar á hægri kantinum hjá Charlton og þekkir því það vel. „Það væri því auðveldast fyrir mig að halda þeirri stöðu en það verður bara að koma í ljós.“

Jóhann Berg á von á að mæta sterkari varnarmönnum í kvöld en á laugardag. „Aðstæður eru vissulega allt öðruvísi en maður reynir samt að koma einhverjum fyrirgjöfum inn í teig og fara svo á vinstri löppina til að skjóta á markið. Það gekk ekki nógu vel á móti Lettlandi en það tekst vonandi betur gegn Tyrklandi.“

Hans síðasta landsliðsmark kom gegn Wales í mars í fyrra og hann segir tímabært að skora annað. „Fyrir löngu síðan. Það hlýtur að detta inn í þessum leik, annars verða menn ansi ósáttir,“ sagði hann og brosti.


Tengdar fréttir

Gylfi: Verðum að nýta þeirra veikleika

Gylfi Þór Sigurðsson á ekki von á auðveldum leik gegn Tyrklandi í kvöld en hann segir alla í hópnum stefna að því sama - að vinna leikinn og riðilinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×