Golf

Joe LaCava heldur tryggð við Tiger Woods

Woods og LaCava á Opna breska
Woods og LaCava á Opna breska Getty
Joe LaCava, kylfusveinn Tiger Woods, segir að hann hafi fengið mörg áhugaverð atvinnutilboð í fjarveru skjólstæðings síns en Woods hefur verið mikið frá keppni undanfarin tvö ár.

LaCava er með 30 ára reynslu af PGA-mótaröðinni en hann var meðal annars á pokanum hjá Fred Couples í 20 ár áður en hann hóf störf fyrir Woods.

Ég hef fengið nokkur góð tilboð en í sannleika sagt þá hef ég bara áhuga á að vinna fyrir Tiger eins og er.

Ég sakna auðvitað félaga minna á PGA-mótaröðinni en ég sakna þess mest að taka þátt í að vinna titla. Ég veit að þeir tímar koma aftur því ég vinn ennþá fyrir Tiger Woods.“

LaCava hefur því enn tröllatrú á Woods en hann mun eflaust ekki snúa til baka á völlinn fyrr en í vor.

Samkvæmt reglum PGA-mótararinnar fá kylfusveinar rúmlega 9% af verðlaunafé skjólstæðinga sinna og því þarf LaCava ekki að hafa áhyggjur af fjármálunum en Woods hefur unnið rúmlega 15 milljón dollara síðan að hann tók við pokanum hjá honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×