Viðskipti innlent

Joe and the Juice og Segafredo opna í Leifsstöð

Atli Ísleifsson skrifar
Verslanirnar 66°N, Bláa lónið, Elko, Eymundsson, Optical Studio og Rammagerðin munu allar halda áfram starfsemi.
Verslanirnar 66°N, Bláa lónið, Elko, Eymundsson, Optical Studio og Rammagerðin munu allar halda áfram starfsemi. Mynd/Isavia
Vali á rekstraraðilum í veitinga- og verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli er lokið. Sex verslanir og einn veitingastaður voru valin til að halda áfram rekstri en við bætast tvær nýjar verslanir og fjórir veitingastaðir.

„Veitingarekstur verður í höndum Joe Ísland, sem mun opna Joe and the Juice samloku- og safabar, og Nord í samstarfi við Lagardère Services, sem munu halda áfram rekstri veitingarstaðarins Nord auk þess að opna sjálfsafgreiðsluveitingastað, Segafredo kaffihús og bar með íslensku þema,“ segir í fréttatilkynningu frá Isavia, en þar segir að við valið hafi margir þættir verið metnir, svo sem þjónusta, vöruframboð, ýmsir fjárhags- og rekstrarþættir auk áherslu á tengingu við Ísland.

Þá segir að minni breytingar verði á verslunarrekstri í flugstöðinni. „Verslanirnar 66°N, Bláa lónið, Elko, Eymundsson, Optical Studio og Rammagerðin munu allar halda áfram starfsemi. Við bætast verslun með tískufatnað þar sem boðið verður upp á þekkt erlend vörumerki ásamt íslenskri hönnun, rekin af Airport Retail Group, og sælkeraverslun á vegum Nord og Lagardère Services.“

Samtals barst 71 tillaga, en eftir valferli þar sem tekið var tillit til fjölda þátta urðu þrettán  tillögur fyrir valinu. „Meirihluti þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir valinu eru íslensk. Auk þeirra eru tvö alþjóðleg fyrirtæki með mikla reynslu af rekstri á alþjóðlegum flugvöllum. Með þeim breytingum sem framundan eru í flugstöðinni verður verslunar- og veitingarými stækkað og veitingastöðum fjölgað þannig að flugstöðin mun geta þjónað þeim aukna fjölda farþega sem búist er við á næstu árum. Það hefur í för með sér verulega fjölgun starfa í flugstöðinni og auknar tekjur af verslunarsvæðinu sem styður við mikilvægar fjárfestingar sem framundan eru á flugvellinum. Framkvæmdir hefjast í nóvember og gert er ráð fyrir að þeim ljúki í vor.“

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segist mjög ánægður með niðurstöðu valferlisins. „Markmiðið var að auka arðsemi af verslun og þjónustu, opna markaðinn og stuðla að aukinni samkeppni með því að nota eins opið og gagnsætt ferli og kostur er til að velja rekstraraðila. Þá lögðum við áherslu á að tenging við Ísland yrði sýnileg í vöruúrvali og veitingum. Okkar mat er að við höfum náð þessum markmiðum og gott betur. Við gerum ráð fyrir að tekjur okkar af þessum hluta verslunarsvæðisins aukist um 60%. Þessar nauðsynlegu framkvæmdir munu því borga sig upp með tekjuaukningunni á um tveimur og hálfu ári og við öflum auk þess tekna fyrir framkvæmdir sem við þurfum að ráðast í í fyrirsjáanlegri framtíð.“

Björn Óli segir það ánægjulegt að sjá hversu vel íslensk fyrirtæki stóðu sig í þeirri alþjóðlegu samkeppni sem ferlið fól í sér og það sýnir hversu samkeppnishæf þau eru. „Að sama skapi er mikill áhugi öflugra alþjóðlegra fyrirtækja á rekstri í flugstöðinni mikið styrkleikamerki fyrir Keflavíkurflugvöll.“


Tengdar fréttir

Vilja opna stað í Leifsstöð

Eigendur Joe and the Juice á Íslandi hafa óskað eftir veitingarými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þeir undirbúa sig nú, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, undir samningaviðræður við Isavia sem rekur Keflavíkurflugvöll. Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt og Eygló Björk Kjartansdóttir eru stærstu eigendur fyrirtækisins.

Vondir útlendingar

Forvitnilegt hefur verið að fylgjast með útboðsferli Isavia í tengslum við verslunarrými á Keflavíkurflugvelli. Kaffitár er eitt þeirra fyrirtækja sem hafa verið með aðstöðu í Leifsstöð, og raunar er það fastur liður hjá stjórnarmanninum að stoppa í einn tvöfaldan áður en hann fer í morgunflug.

IGS segir upp 40 manns

IGS Ground Services, dótturfélag Icelandair Group, hefur sagt upp um 20 manns sem vinna við veitingarekstur í Leifsstöð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×