Samstarf

Joe & the Juice opnar í Lágmúla - tveir fyrir einn af matseðli

Nýi staðurinn er staðsettur í Lágmúla, við hliðina á Nova og JSB dansrækt.
Nýi staðurinn er staðsettur í Lágmúla, við hliðina á Nova og JSB dansrækt.
Veitingastaðurinn Joe & the Juice hefur opnað nýjan stað í Lágmúla. Í tilefni opnunarinnar verður sérstakt tilboð í Lágmúlanum og boðið upp á tvo fyrir einn af öllum réttum á matseðli í dag, föstudag.

„Móttökurnar á Íslandi hafa verið frábærar. Fyrsti staðurinn á Íslandi opnaði í Kringlunni 2013 og nú erum við að opna sjöunda staðinn,“ segir Daníel Kári Stefánsson, framkvæmdastjóri Joe & the Jucie á Íslandi.

Boðið verður upp á tvo fyrir einn af matseðli í Lágmúlanum í dag í tilefni opnunarinnar.
Daníel segir að staðurinn í Lágmúla sé sá fyrsti sem stendur sér, þ.e. er ekki í verslunarmiðstöð, á flugvelli eða í líkamsræktarstöð.

„Staðsetningin er mjög góð, Lágmúlinn er mjög miðsvæðis í Reykjavík og aðkoman er góð, svo er fjöldi stórra vinnustaða í kring. Það er ekki annað hægt að segja en að við hlökkum til að kynnast þessum hluta borgarinnar.“

Staðurinn í Lágmúla er sjöundi Joe & the Juice á Íslandi.
Joe & the Juice á rætur sínar að rekja til Kaupmannahafnar en á Íslandi eru veitingastaðir í Kringlunni, Smáralind, World Class í Laugum, Laugavegi og svo tveir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Staðurinn í Lágmúla er sá fyrsti sem stendur sér, þ.e. er ekki í verslunarmiðstöð, á flugvelli eða í líkamsræktarstöð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×