Fótbolti

Joao Mario til Inter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Joao Mario í leik með Sporting Lisbon.
Joao Mario í leik með Sporting Lisbon. vísir/getty
Portúgalinn Joao Mario er genginn til liðs við Inter Milan frá Sporting Lisbon. Ítalska félagið greiðri 38 milljónir punda fyrir leikmanninn en hann hefur verið orðaður við Liverpool í allt sumar.

Mario sló rækilega í gegn á Evrópumótinu í knattspyrnu í sumar en Portúgal vann að lokum mótið. Aldrei hefur verið borgað meira fyrir leikmann frá félagi í Portúgal.

Þessi 23 ára leikmaður styrkir Inter Milan enn meira en félagið hefur nú þegar fengið Antonio Candreva, Dodo, Cristian Ansaldi, Marcelo Brozovic, Gianluca Caprari, Rey Manaj og Ever Banega í sumar og ætlar félagið sér stóra hluti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×