Golf

Jimmy Walker með forystu á PGA-meistaramótinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jimmy Walker lék á fimm höggum undir pari í dag.
Jimmy Walker lék á fimm höggum undir pari í dag. vísir/getty
Bandaríkjamaðurinn Jimmy Walker er með forystu eftir fyrsta hringinn á PGA-meistaramótinu í golfi.

Walker lék hringinn á 65 höggum, eða fimm höggum undir pari.

Argentínumaðurinn Emiliano Grillo, Englendingurinn Ross Fisher og Þjóðverjinn Martin Kaymer eru jafnir í 2. sæti en þeir léku allir á fjórum höggum undir pari.

Ástralinn Jason Day, efsti maður heimslistans og sigurvegarinn á PGA-meistaramótinu í fyrra, er í 9. sæti á tveimur höggum undir pari.

Svíin Henrik Stenson, sem vann Opna breska meistaramótið á dögunum, er í 5. sæti á þremur höggum undir pari.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×