Golf

Jimmy Walker leiðir eftir tvo hringi í Texas

Jimmy Walker einbeittur á öðrum hring í gær.
Jimmy Walker einbeittur á öðrum hring í gær. Getty
Bandaríska Ryder-stjarnan, Jimmy Walker, leiðir á Valero Texas Open eftir tvo hringi en hann hefur leikið hringina tvo á TPC San Antonio á sex höggum undir pari.

Á eftir honum koma þeir Charley Hoffman og Aaron Baddeley á fimm höggum undir pari en Kevin Na og ungstirnið Jordan Spieth koma þar á eftir á fjórum höggum undir.

Aðstæður héldu áfram að gera þátttakendum lífið leitt en mikill vindur hefur verið fyrstu tvo dagana og þegar að mótið er hálfnað eru aðeins 14 kylfingar undir pari vallar, sem verður að teljast mjög óvenjulegt miðað við hversu sterkt mót á PGA-mótaröðinni er um að ræða.

Einn af þeim sem eru í góðum málum er Phil Mickelson en hann er á tveimur höggum undir pari og gæti með góðum hring á morgun gert atlögu að efstu mönnum, en þessi vinsæli kylfingur virðist vera að finna sitt besta form fyrir Masters mótið sem hefst eftir tvær vikur.

Þriðji hringur á hinum krefjandi TPC San Antonio verður í beinni útendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×