Golf

Jimmy Walker í góðum málum á Valero Texas Open

Jimmy Walker sallarólegur á þriðja hring í kvöld.
Jimmy Walker sallarólegur á þriðja hring í kvöld. Getty
Bandaríkjamaðurinn Jimmy Walker hefur sýnt um helgina af hverju hann sigraði á þremur atvinnumótum á síðasta tímabili en fyrir lokahringinn á Valero Texas Open leiðir hann með fjórum höggum.

Walker lék þriðja hringinn á TPC San Antonio vellinum á 69 höggum eða þremur undir pari en hann er samtals á níu höggum undir pari.

Eins og staðan er núna þá virðist Jordan Spieth vera eini kylfingurinn sem getur gert atlögu að Walker á lokahringnum en hann er einn í öðru sæti á fimm höggum undir pari, fjórum höggum á eftir fyrsta sætinu.

Aðstæður á TPC San Antonio hafa verið mjög erfiðar hingað til en vindur og hraðar flatir hafa gert mörgum bestu kylfingum PGA-mótaraðarinnar erfitt fyrir, sem þýðir að aðeins ellefu kylfingar eru undir pari fyrir lokahringinn.

Hann verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:00 á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×