Lífið

Jimmy Kimmel grét ekki mikið við fæðingu dóttur sinnar

Þáttastjórnandinn og grínistinn Jimmy Kimmel deildi með aðdáendum sínum fyrstu myndunum af litlu stelpunni hans, Jane Kimmel, í þætti sínum Jimmy Kimmel Live! í gær.

„Eiginkonan [Molly McNearney] hefur það gott. Ég hef það líka gott. Ég var svo hugrakkur. Ég grét dálítið en ég öskraði ekki. Þið hefðuð verið mjög stolt af mér,“ sagði Jimmy í þættinum. 

„Við eignuðumst litla stelpu. Við skírðum hana eftir ömmu minni - hún heitir Amma Kimmel. Nei, hún heitir Jane.“

Jane er aðeins 12 daga gömul, en í myndbandinu sem fylgir má sjá myndir af frumburði Jimmys og Molly.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×