Lífið

Jimmy Carr-aðdáendur takið eftir: Einni sýningu bætt við

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Íslendingar eru trylltir í Jimmy Carr.
Íslendingar eru trylltir í Jimmy Carr. vísir/getty
Miðar á uppistandssýningu grínistans Jimmy Carr, Gagging Order, þann 22. mars seldust upp á fimm mínútum í morgun þegar miðasala hófst klukkan 10.00. Þá fór aukasýning þann 23. mars í sölu stuttu síðar og seldust þeir miðar upp á tíu mínútum.

Nú hefur Sena ákveðið að bæta við einni „late night“-sýningu með kappanum þann 22. mars klukkan 22.30 í Háskólabíói.  

Miðsala á þessa sýningu hefst klukkan 10.00 á mánudaginn næsta en aðeins eru átta hundruð miðar í boði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×