Golf

Jimenez sigraði á bandarísku öldungamótaröðinni í fyrstu tilraun

Jimenez er afar vinsæll hvar sem hann spilar.
Jimenez er afar vinsæll hvar sem hann spilar. AP/Vísir
Spánverjinn Miguel Angel Jimenez sigraði á sínu fyrsta móti á bandarísku öldungamótaröðinni um síðustu helgi eftir að hafa unnið Greater Gwinnett meistaramótið sem fram fór TPC Sugarloaf vellinum. Hann lék samtals á 14 höggum undir pari og sigraði mótið með tveimur höggum, en hann háði harða baráttu við Bernhard Langer um sigurinn sem endaði í öðru sæti á 12 höggum undir pari.

Jimenez sem er 50 ára hefur spilað vel að undanförnu og var meðal annars í hörkubaráttu um sigur á Mastersmótinu sem fram fór fyrir tveimur vikum. Þrátt fyrir sigurinn í sinni fyrstu tilraun á öldungamótaröðinni segist hann ekki ætla að einbeita sér að henni í náinni framtíð.

„Markmið mitt er að komast í Ryderlið Evrópu og til þess þarf ég að leika á evrópsku mótaröðinni,“ sagði Jimenez við fréttamenn eftir sigurinn um helgina. „Það hefur verið markmiðið mitt lengi því mig langar að upplifa Ryderbikarinn sem þátttakandi einu sinni enn áður en ég verð orðinn of gamall. Ég hef fulla trú á því að það takist enda hef ég verið að spila mitt besta golf í mörg ár að undanförnu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×