Handbolti

Jicha með tilboð frá Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Barcelona hefur gert Filip Jicha samningstilboð samkvæmt heimildum þýskra fjölmiðla en Börsungar vilja fá hann til að fylla í skarð Nikola Karabatic, sem er farinn til PSG.

Jicha hefur verið í herbúðum Kiel síðan 2007 og verið einn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar um árabil. Hann er fyrirliði félagsins og unnið allt sem hægt er að vinna með félaginu.

Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel en á það á hættu að missa nú einn sinn allra besta leikmann. Jicha er nú sagður vera að íhuga tilboð Börsunga en það er til næstu fjögurra ára. Jicha er 33 ára gamall og er samningsbundinn Kiel í eitt ár í viðbót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×