Lífið

Jerry Seinfeld skammaði gamla konu

Jerry Seinfeld passar mikið upp á bílanna sína.
Jerry Seinfeld passar mikið upp á bílanna sína. vísir/getty
Grínistinn Jerry Seinfeld hefur átt Seinfeld-þáttunum sína gríðarlegu velgengni að þakka en hann er þekktur fyrir gríðarlegan áhuga sinn á bílum og á grínistinn ófáar glæsikerrurnar í bílskúrnum sem hann passar vel upp á.

Seinfeld var staddur í Hamptons-hverfinu í vikunni í hádegismat ásamt argentíska íþróttamanninum Nacho Figueras þegar hann sér bandaríska konu leggja, að hans mati, aðeins of nálægt rándýru Porsche-bifreið sinni.

Steig Seinfeld því út og átti í orðaskipti við konuna og sagði hana hafa lagt alltof nálægt bílnum.

Konunni, sem varð að sjálfsögðu smá brugðið, ákvað að færa bílinn sinn ekki fjær bíl Seinfeld heldur keyrði hún í burtu og hefur líklegast fundið sér stæði annarsstaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×