Innlent

Jeppi í köku eftir árekstur við sjúkrabíl: Mikil mildi að enginn slasaðist alvarlega

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Eins og sjá má fór jeppinn í köku eftir árekstur við sjúkrabíl sem var í forgangsakstri á föstudag.
Eins og sjá má fór jeppinn í köku eftir árekstur við sjúkrabíl sem var í forgangsakstri á föstudag. mynd/lögreglan
Það má segja að mikil mildi að ekki fór verr þegar sjúkrabíll í forgangsakstri lenti í árekstri við við lítinn jeppa sem var að beygja af Vesturlandsvegi inn á Hvítarárvallaveg síðastliðinn föstudag.

Allir þeir sem lentu í slysinu voru í öryggisbeltum og sluppu því með minniháttar meiðsl en á myndinni hér að ofan sem lögreglan á Vesturlandi birti á Facebook-síðu sinni má sjá hversu illa farinn jeppinn er sem varð fyrir sjúkrabílnum.

Þá sluppu tveir erlendir ferðamenn líka með minniháttar meiðsl þegar bílaleigubíll fór út af og valt við Háls á Skógarströnd í gær. Voru þeir fluttir til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Akranesi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×