Glamour

Jennifer Lawrence glæsileg í nýrri auglýsingu Dior

Ritstjórn skrifar
Óskarsverðlaunahafinn Jennifer Lawrence er stórglæsileg í nýrri auglýsingu fyrir Dior. Þar auglýsir hún nýjasta varalit merkisins Dior Addict.

Í auglýsingunni minnir Lawrence óneitanlega á leikkonuna Sharon Stone í kvikmyndinni Basic Instict er hún snýr sér í hringi á stólnum.

Lawrence hefur verið andlit Dior síðan árið 2012, þegar hún sat fyrir í auglýsingaherferð fyrir Miss Dior handtöskur.

Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.





Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.






×