Lífið

Jennifer Garner snýr aftur á hvíta tjaldið

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Hjónin Jennifer Garner og Ben Affleck hafa í nógu að snúast.
Hjónin Jennifer Garner og Ben Affleck hafa í nógu að snúast.
Leikkonan Jennifer Garner hefur nú sent frá sér tilkynningu þess efnis að hún hyggist snúa aftur á hvíta tjaldið eftir langa fjarveru. Garner, sem er gift leikaranum Ben Affleck, segir að nú sé hennar tími kominn til að snúa aftur.

„Ég hef verið heima í langan tíma með börnin og nú er bara komið að því að ég fari aftur að vinna,“ segir Garner og hún stefnir að því að byrja aftur að leika í vor og eitthvað fram á haustið.

Þau Garner og Affleck eiga saman þrjú börn, Violet níu ára, Seraphina sex ára og Samuel sem er tveggja ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×