Glamour

Jennifer Aniston í kjól frá Sólveigu Kára

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Jennifer Aniston vakti mikla á rauða dregilinum þegar myndin Zoolander 2 var frumsýnd í New York í vikunni en hún klæddist vínrauðum kjól frá fatamerki Sólveigar Káradóttir, Galvan London. 

Aniston paraði gyllta hæla og skartgripi við vínrauða kjólinn með glæsilegum hætti en eiginmaður hennar Justin Theroux er einn af handritshöfundum myndarinnar ásamt því að leika í henni. 

Galvan er að verða eitt vinsælasta merkið á rauða dreglinum hjá stjörnunum en Sólveig er listarænn stjórnandi merkisins. Aniston bætist í flotta hóp aðdáenda merkisins sem telur til dæmis Gwyneth Paltrow, Siennu Miller og Kate Hudson. 

Hægt er að lesa meira um sigra Galvan og Sólveigar í tískuheiminum hér. 

Jennifer Aniston og Justin Theroux.





×