Erlent

Jeff Sessions ræddi við rannsakendur Mueller

Samúel Karl Ólason skrifar
Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna.
Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. Vísir/Getty
Rannsakendur Robert S. Mueller, sérstaks saksóknara, ræddu við Jeff Sessions, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, í síðustu viku vegna Rússarannsóknarinnar svokölluðu. Hann er fyrsti meðlimur ríkisstjórnar Donald Trump, forseta, sem rannsakendur hafa rætt við og var rætt við hann í margar klukkustundir samkvæmt frétt New York Times.



Mueller rannsakar afskipti yfirvalda í Rússlandi af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016 og mögulegt samstarf framboðs Trump með þeim afskiptum. Hann var skipaður í embætti sérstaks saksóknara eftir að Trump viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa rekið James Comey, fyrrverandi yfirmann Alríkislögreglunnar, vegna rannsóknar stofnunarinnar á afskiptum Rússa af kosningunum sem Comey leiddi.

Mögulegt lykilvitni

Rannsókn Mueller snýr meðal annars að því hvort að Trump hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar með því að reka Comey. Sessions gæti verið lykilvitni Mueller varðandi brottrekstur Comey þar sem hann kom var einn af fáum sem ræddu brottreksturinn beint við forsetann.

Þar að auki leiddi Sessions utanríkismálanefnd framboðs Trump og tók þátt í að mynda stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Rússlandi.

Sjá einnig: Sagði Ástrala að Rússar sætu á upplýsingum um Clinton áður en það var opinbert



Sessions sjálfur hefur sagt sig frá rannsókninni eftir að í ljós kom að hann hafði sagt ósatt frá fundum sínum og Sergei Kislyak, sendiherra Rússlands.

Sessions var einn af fyrstu og dyggustu stuðningsmönnum Trump og var fyrsti öldungadeildarþingmaðurinn til að lýsa yfir stuðningi við framboð Trump. Forsetinn er þó reiður við hann og segir ákvörðun hans um að segja sig frá rannsókninni hafa leitt til þess að Robert Mueller var skipaður sérstakur saksóknari til að rannsaka afskiptin og mögulegt samstarf framboðs Trump með yfirvöldum í Rússlandi.

Trump hefur einnig gagnrýnt Sessions fyrir að vernda sig ekki. Nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins hafa kallað eftir því að Sessions segi af sér og saka hann um að hafa ekki tekist að stöðva rannsókn FBI, sem þeir segja vera glæfralega.



Gagnrýni Repúblikana á Muell, FBI og Dómsmálaráðuneytið hefur færst mjög svo í aukana á undanförnum mánuðum.

Sjá einnig: Óttast brottrekstur Mueller í kjölfar árása



Formaður þingnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, Devin Nunes, hefur sett saman minnisblað sem hann og aðrir þingmenn Repúblikanaflokksins, segja að sýni fram á starfsmenn FBI og Dómsmálaráðuneytisins hafi brotið lög við framkvæmd Rússarannsóknarinnar og hleranir á framboði Trump.

Þingmennirnir hafa neitað að afhenda FBI og ráðuneytinu umrætt minnisblað og vilja þess í stað að Trump opinberi það sjálfur. Demókratar segja að um enn eina tilraunina til að grafa undan rannsókninni sé að ræða.


Tengdar fréttir

Bannon segir umdeildan fund Trump yngri vera landráð

"Þremur æðstu mönnum framboðsins fannst það góð hugmynd að funda með fulltrúum erlendrar ríkisstjórnar í Trump-turni, í fundarherberginu á 25 hæð og án þess að vera með lögmenn viðstadda.“

Hvíta húsið múlbatt Bannon

Fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trump í Hvíta húsinu neitaði að svara spurningum þingmanna í gær.

Trump segir viðtal við Mueller ólíklegt

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ólíklegt að hann muni ræða við rannsakendur Robert Mueller, sérstaks saksóknara, vegna rannsóknarinnar á afskiptum Rússa af forsetakosningunum þar í landi árið 2016.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×