Erlent

Játar að hafa myrt sex börn sín

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
MYND/FOX13NOW.COM
Konan sem myrti börn sín sex í Bandaríkjunum hefur játað á sig morðin. Hún segist hafa kyrkt þau og kæft og sett þau svo ofan í kassa í bílskúr sínum.

Konan fæddi sjö börn á tíu ára tímabili á heimili sínu. Eitt þeirra fæddist andvana.

Konan heitir Megan Huntsman og er hún þrjátíu og níu ára gömul. Hún segist hafa myrt börnin um leið og þau fæddust, vafið þau í handklæði eða bol og sett þau síðan í plastpoka.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×