Golf

Jason Gore tekur forystuna á Wyndham fyrir lokahringinn - Tiger í öðru

Jason Gore fagnar fugli á þriðja hring í dag.
Jason Gore fagnar fugli á þriðja hring í dag. Getty

Bandaríkjamaðurinn högglangi, Jason Gore, er með tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Wyndham meistaramótinu sem fram fer á Sedgefield vellinum í Greensboro.

Gore lék magnað golf á þriðja hring en hann kom inn á 62 höggum eða átta undir pari og er eftir 54 holur á samtals 15 höggum undir pari.

Tveimur á eftir honum koma þeir Scott Brown, Jonax Blixt og Tiger Woods en sá síðastnefndi lék á 68 höggum á þriðja hring eða tveimur undir pari.

Lokahringurinn á eftir að vera spennandi en eftir hann kemur í ljós hvaða kylfingar komast inn í úrslitakeppni PGA-mótaraðarinnar og hvaða kylfingar missa þátttökurétt sinn á mótaröðinni fyrir næsta ár.

Augu flestra eiga eftir að vera á Tiger Woods en hann þarf að sigra á morgun eða lenda einn í öðru sæti ef hann ætlar að komast inn í úrslitakeppnina.

Bein útsending frá Sedgefield vellinum hefst á morgun Golfstöðinni klukkan 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×