Sport

Járnmaður og iðnaðarráðherra keppa í Gullhringnum

Finnur Thorlacius skrifar
Keppendur í Gullhringnum í fyrra.
Keppendur í Gullhringnum í fyrra.
Eitt stærsta hjólreiðamót sumarsins, Kia Gullhringurinn, verður haldið á morgun á Laugarvatni. Margir þekktir keppendur taka þátt, svo sem heimsþekktur Iron Man jaxl, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðarráðherra og sjónvarpsfólk frá 365.

Það stefnir í að rúmlega 300 manns hjóli af stað á morgun og hefur þátttaka aldrei verið meiri. Kia er sérstakur styrktaraðili mótsins.




Meðal keppenda eru bestu hjólreiðamenn landsins. Þar fara fremstir Hafsteinn Ægir Geirsson hjólreiðamaður ársins 2013, sem vann Gullhringinn í fyrra og bræðurnir Ingvar og Óskar Ómarssynir sem leiddu sigurlið WOW keppninnar. Þá hefur ráðherra Iðnaðar- og ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir, skráð sig til leiks ásamt fjölmiðlakonunum Kolbrúnu Björnsdóttur og Telmu Tómasdóttur og kollega þeirra af Stöð 2 Þorbirni Þórðarsyni.



Þá er Þjóðverjinn Kai Walter ásamt 4 öðrum löndum sínum skráður til leiks þannig að Gullhringurinn er orðið alþjóðlegt mót. Kai er fyrrum framkvæmdastjóri IRON MAN keppnanna í Evrópu en það er stærsta þríþrautar-íþróttamót í heiminum. Kai stýrði meðal annars Iron Man keppninni í Frankfurt sem íslenskir járnkarlar hafa verið árlegir þátttakendur í.



"Kveikjan að mótinu er Vatternrundan mótið í Svíþjóð en þar er hjólað í kringum vatn eins og má segja að við séum að gera. Þar keppa 30.000 manns á hverju ári. Þannig að Gullhringurinn gæti sannarlega tekið flugið og athygli aðila eins og Kai hjálpar sannarlega.”  segir Áslaug Einarsdóttir skipuleggjandi keppninnar. “Það er markmið okkar að keppendur í Gullhringum verði um 3000 á 10 ára afmæli hans árið 2022".



Gullhringurinn er skipulagður í samvinnu við ferðaþjónustuaðila á Laugarvatni. Fontana laugarnar og hótelið á Héraðskólanum og veitingastaðurinn Lindin hafa staðið við bakið á keppninni og fulltrúar ferðaþjónustunnar í uppsveitum Árnessýslu hafa verið í nánu samstarfi varðandi þróun keppninnar ár frá ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×