Innlent

Jarla, Júlíhuld og Gígur samþykkt

Birgir Olgeirsson skrifar
Húna Stasía er hið besta nafn.
Húna Stasía er hið besta nafn. Vísir/Getty
Mannanafnanefnd birti í dag tíu úrskurði þar sem kveðið er á um hvað má og hvað má ekki heita og ber þar helst til tíðinda að konur mega nú heita Júlíhuld og Jarla og karlar geta borið nafnið Gígur.

Nefndin barst erindi um að fá leyfi fyrir að heita kvenmannsnafninu Jarla og fékkst leyfi fyrir því vegna þess að Jarla tekur íslenskri beygingu í eignarfalli og verður þar að Jörlu. Sama átti við um kvenmannsnafnið Júlíuhuld en hins vegar var tökunafninu Anya hafnað.

Til að slíkt tökunafn öðlist gildi samkvæmt vinnureglum nefndarinnar þarf það að hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Telst nafnið hafa öðlast hefði ef það er nú borið af að minnsta kosti fimmtán Íslendingum, það er nú borið af 10 – 14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð að minnsta kosti 30 ára aldri, það er nú borið af 5 – 9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð að minnsta kosti 60 ára aldri, það er nú borið af 1 – 4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910, það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur fyrir að minnsta kosti í tveimur manntölum frá 1703 til 1910.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands eru tvær stúlkur skráðar með eiginnafnið Anya sem uppfylla áðurnenfd skilyrði og eru þær fæddar árin 2002  og 2006. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703 til 1920 og uppfyllir þar af leiðiandi ekki öll ákvæði fimmtu grinar laga um mannanöfn og því hafnað.

Kvenmannsnafnið Húna var samþykkt sökum þess að það tekur íslenskri beygingu í eignarfalli og verður þar að Húnu. Sama á við um karlmannsnafnið Gígur og kvenmannsnafnið Stasía. Þá var kvenmannsnafnið Marzibil einnig samþykkt og karlmannsnafnið Willy en samkvæmt gögnum Þjóðskrár bera tveir karlar eiginnafnið Willy í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna og nafnið kemur jafnframt fyrir í manntali frá 1920.

Mannanafnanefnd hafnaði karlmannsnafninu og rithættinum Bjarkarr, hafnaði kvenmannsnafninu Alexstrasza en samþykkti kvenmannsnafnið Alexstrasa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×