Innlent

Jarðrask á friðaðri Dyrhóley: RARIK gleymdi að láta Umhverfisstofnun vita

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Jarðrask í eyjunni.
Jarðrask í eyjunni. Myndir/Grétar Einarsson
„Þeir gleymdu að tilkynna þetta til okkar og því fór sem fór. Þarna varð eitthvert jarðrask á friðuðu landi, skaðinn er skeður og lítið annað hjá okkur að gera en að fara austur og skoða aðstæður og meta í framhaldinu hvað við gerum. Eins og staðan er nú er ekki ljóst hver viðbrögð stofnunarinnar verða en farið var í framkvæmdir án leyfis stofnunarinnar,“ segir Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun.

Stofnunin hefur fengið nokkrar ábendingar vegna jarðrasks á Dyrhóley í Mýrdalshreppi á friðuðu landi. Málavextir eru þeir að RARIK lagði fyrir helgina jarðstreng frá vitanum á eyjunni að veginum í þeirri trú að öll leyfi væru til staðar, enda búið að fá samþykki hluta landeigenda en láðst hafði að fá leyfi Umhverfisstofnunar. 

Umhverfisstofnun hafði í hyggju að leggja jarðstreng inn í Lágey Dyrhólaeyjar vegna byggingu salernishúss og hafði stofnunin á sínum tíma fengið tilskilin leyfi til þess. Var RARIK framkvæmdaraðili fyrir hönd Umhverfisstofnunar og hóf þær framkvæmdir fyrir helgi. Ekki lá fyrir beiðni fyrir lögninni að vitanum heldur einvörðungu að umræddu salerni.

„Algjörlega ótrúlegt“

Þeir sem eru í ferðaþjónustu á Suðurlandi eru margir mjög hissa á vinnubrögðunum varðandi jarðstrenginn frá vitanum og hvernig farið hefur verið um friðaða landið. Friðrik Pálsson á Hótel Rangá er einn þeirra.

„Ég er alls enginn umhverfisfasisti, eins og sagt er, en mér finnst þetta algjörlega ótrúlegt,“ segir Friðrik. „Þetta hlýtur að hafa afleiðingar. Þessar framkvæmdir á Dyrhólaey hljóta hins vegar jafnframt að vera háðar leyfi frá Umhverfisstofnun, en hver átti að hafa eftirlit með þeim? Hvort þetta tengist svo leigu Icelandair Hótels á vitanum í Dyrhólaey er svo önnur saga.“

Ásgeir Magnússon, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, kom af fjöllum þegar hann var spurður út í málið í dag og sagði að það væru engar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins í Dyrhóley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×