Bílar

Japanskir verkamenn í bílaverksmiðjum vilja hluta hagnaðar

Finnur Thorlacius skrifar
Í japanskri bílaverksmiðju.
Í japanskri bílaverksmiðju.
Öllum bílafyrirtækjum Japans gekk vel á síðasta ári og samanlagður hagnaður þeirra nemur 4.453 milljörðum króna.

Starfsfólk í verksmiðjum þeirra krefjast nú hluta þess hagnaðar og lái þeim hver sem vill. Kröfur stéttarfélaga þeirra sækjast nú eftir hækkun allra starfsmanna þeirra um 50 dollara á mánuði, eða um 6.600 krónur.

Það virðist ekki há krafa í samanburði við risahagnaðinn, en þessi hækkun myndi krefjast 1/56 af árshagnaðinum í fyrra fyrir þá 766.000 starfsmenn sem vinna í Japan fyrir þessi fyrirtæki.

Japönsku bílafyrirtækin hafa ekki verið svo viljug að hækka laun starfsmanna sinna svo það gæti stefnt enn einu sinni í verkföll í japönskum bílaverksmiðjum. Ástæða þess hve japönsku bílafyrirtækin högnuðust vel í fyrra var lágt gengi japanska yensins og árið í ár lítur jafnvel út.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×