Fótbolti

Januzaj ætlar að spila fyrir Belgíu

Adnan Januzaj.
Adnan Januzaj. vísir/getty
Hinn bráefnilegi leikmaður Man. Utd, Adnan Januzaj, ákvað í dag að spila fyrir belgíska landsliðið í fótbolta.

Belgíska knattspyrnusambandið tilkynnti þetta í dag. Januzaj gat valið að spila fyrir mörg landslið og hefur verið beðið eftir þessari ákvörðun.

Hinn 19 ára gamli Januzaj er Kósóvó-Albani að upplagi en þó af tyrkneskum ættum. Hann er aftur á móti fæddur í Belgíu. Hann hefði líka getað spilað fyrir Serbíu og Englendingar gerðu sér lengi vel vonir um að koma honum fyrir á ensku ríkisfangi.

Þessi skemmtilegi leikmaður hefur sýnt lipra takta með Man. Utd í vetur og er mikils vænst af honum í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×