Handbolti

Janus Daði: Hefði verið dauði að fá ekki neitt út úr þessum leik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Janus Daði skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum gegn Túnis.
Janus Daði skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í leiknum gegn Túnis. vísir/getty
Janus Daði Smárason átti flotta innkomu í lið Íslands í jafnteflinu gegn Túnis á HM í Frakklandi í dag.

„Við erum hundfúlir strax eftir leik. Við verðum bara að fara út með kassann og upp með hausinn. Við fengum stig og það hefði verið hálfgerður dauði að fá ekki neitt. Nú þurfum við bara að ná í næstu tvö stig,“ sagði Janus sem viðurkenndi að íslenska liðið hefði gert of mörg mistök í leiknum.

„Mér fannst við vera komnir með hörkutak á þeim en svo læt ég reka mig aðeins út af. Það er erfitt að vera svona mikið færri. Við verðum að skoða þennan leik og horfa á þegar við keyrðum upp, því möguleikarnir eru miklir. Við skoruðum mikið úr hraðaupphlaupum í seinni hálfleik en mér fannst við geta gert aðeins betur,“ sagði Janus sem fékk þrjár tveggja mínútna brottvísanir í leiknum. En var hann ósáttur með þá dóma?

„Já, ég er auðvitað hundsvekktur. Fyrsta var allt í lagi, þá endaði ég í andlitinu á honum. Hinar tvær, ég á bara ekki að bjóða upp á þetta og vera klókari. Ég ætla ekki að láta þetta koma fyrir aftur,“ sagði Álaborgarmaðurinn.

Janus kom inn á um miðjan fyrri hálfleik og breytti taktinum í sóknarleik Íslands. Hann segist hafa verið vel stemmdur, eins og alltaf.

„Já, ég er það fyrir hvern leik. Við erum að spila fyrir Ísland og ef þú ert ekki klár í svona leiki áttu ekki skilið að vera hérna. Þetta er æðislegt,“ sagði Janus sem er brattur fyrir framhaldið.

Við verðum að líta á hvern leik sem úrslitaleik og við ætlum að mæta í næsta leik og gera okkar besta. Við höfum fulla trú á því að við fáum tvo punkta þar.“


Tengdar fréttir

Geir: Túnis er með öflugt lið

"Það er afríkanskt yfirbragð af einhverju leyti á liði Túnis,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en drengirnir hans mæta sterku liði Túnis klukkan 13.45 í dag.

Alexander: Langar stundum að vera með

Járnmaðurinn Alexander Petersson er í borgaralegum klæðum í Metz og hann var að fá sér pylsu með fjölskyldunni er Vísir rakst á hann fyrir leik.

Bjarki Már: Komumst upp með ýmislegt í vörninni

„Þetta var skemmtilegur leikur og við fengum heldur betur að berjast mikið í dag,“ segir Bjarki Már Gunnarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir jafnteflið við Túnis á HM í handbolta í Frakklandi í dag.

Faðir Arnars Freys: Strákurinn er búinn að massa sig upp

„Maður er náttúrulega alveg gríðarlega stoltur af stráknum, hann kom mjög sterkur inn í fyrsta leik,“ segir Arnar Þór Sævarsson, bæjarstjóri á Blönduósi og faðir línumannsins Arnars Freys sem sló í gegn í fyrsta leik Íslands á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×