Fótbolti

James þakkaði traustið með marki

James Rodriguez nýtti tækifærið og skoraði
James Rodriguez nýtti tækifærið og skoraði vísir/getty
James Rodriguez var í byrjunarliði Real Madrid í fyrsta sinn á tímabilinu í fjarveru Cristian Ronaldo og Gareth Bale og nýtti tækifærið til fullnustu.

Real Madrid vann Espanyol 2-0 og er enn með fullt hús stiga í efsta sæti deildarinnar, nú eftir fjórar umferðir. Espanyol er aðeins með tvö stig í neðri hluta deildarinnar.

James kom Real Madrid í 1-0 með góðu skot rétt fyrir hálfleik. Honum var skipta af leikvelli á 62. mínútu en Karim Benzema skoraði seinna mark stórliðsins frá Madrid á 71. mínútu eftir laglega sókn.

Real Madrid hefur nú unnið 16 deildarleiki í röð sem eru jöfnun á meti Barcelona frá tímabilinu 2010/2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×