Fótbolti

James sá fimmti sem skiptir um lið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
James Rodriguez mun klæðast búningi Real Madrid á næstu leiktíð.
James Rodriguez mun klæðast búningi Real Madrid á næstu leiktíð. Vísir/Getty
Real Madrid gekk í dag frá kaupunum á James Rodrgiuez.

Kólumbíumaðurinn kemur frá franska liðinu Monaco, þar sem hann lék á síðasta tímabili, en talið er að kaupverðið sé í kringum 80 milljónir evra.

James sló sem kunnugt er í gegn á HM í Brasilíu fyrr í sumar, þar sem hann skoraði sex mörk í fimm leikjum fyrir Kólumbíu sem féll úr leik fyrir Brasilíu í 16-liða úrslitum. Með þessum sex mörkum tryggði James sér gullskóinn, en hann skoraði einu marki meira en Þjóðverjinn Thomas Müller.

James er fimmti handhafi gullskósins sem skiptir um félag eftir að hafa orðið markakóngur á HM.

Fyrstur til þess var Argentínumaðurinn Guillermo Stabile. Hann skoraði átta mörk mörk í fjórum leikjum fyrir Argentínu á HM 1930, en þetta voru hans einu landsleikir fyrir Argentínu.

Eftir HM, þar sem Argentínu lenti í öðru sæti á eftir gestgjöfum Úrúgvæs, var Stabile keyptur til ítalska liðsins Genoa frá Huracan í heimalandinu. Hann lék með Genoa um fimm ára skeið.

Enski þjálfarinn Terry Venables keypti landa sinn, Gary Lineker, til Barcelona á 2,8 milljónir punda eftir að sá síðarnefndi varð markakóngur HM 1986 með sex mörk.

Lineker lék í þrjú ár með Katalóníuliðinu og skoraði 52 mörk í 138 leikjum.

Oleg Salenko kom flestum á óvart með því að verða markakóngur á HM 1994 í Bandaríkjunum. Salenko skoraði sex mörk fyrir Rússa, en fimm þeirra komu í 6-1 sigri á Kamerún. Til þessa dags hefur enginn leikmaður skorað jafn mörg mörk í einum leik á HM.

Í kjölfarið var Salenko keyptur til Valencia frá Logroñés. Honum tókst ekki að finna fjölina sína hjá Valencia og ferill Rússans fjaraði smám saman út.

Ronaldo stal senunni á HM 2002 þar sem hann skoraði átta mörk fyrir heimsmeistara Brasilíu, en framherjinn hafði lítið leikið árin á undan vegna alvarlegra meiðsla.

Eftir HM reiddi Florentino Perez, forseti Real Madrid, fram 46 milljónir evra fyrir

Ronaldo sem bættist þá í fríðan hóp stórstjarna fyrir voru hjá félaginu.

Ronaldo lék í fimm ár með spænska stórveldinu og skoraði yfir 100 mörk fyrir félagið.


Tengdar fréttir

David Luiz og Dani Alves hugguðu James í leikslok - myndir

Kólumbíumaðurinn James Rodríguez kemur örugglega til greina sem besti leikmaður HM í Brasilíu þrátt fyrir að hann hafi spilað sinn síðasta leik í átta liða úrslitunum í 1-2 tapi á móti Brasilíu í kvöld.

James tapaði í kvöld en komst í fámennan HM-hóp

Kólumbíumaðurinn James Rodríguez var í kvöld aðeins sjötti leikmaðurinn í sögu HM í fótbolta sem nær að skora sex mörk í fyrstu fimm leikjum sínum á HM í fótbolta og aðeins Pele var yngri þegar hann skoraði sitt sjötta HM-mark.

Mark James það besta á HM

Fyrra mark James Rodriguez í leik Kólumbíu og Úrúgvæs í 16-liða úrslitum HM í fótbolta hefur verið útnefnt mark mótsins.

James Rodríguez nálgast Real Madrid

Samkvæmt spænska miðlinum AS hefur Real Madrid komist að samkomulagi við Monaco um kaupverðið á kólumbíska miðjumanninum.

James: Sárir en stoltir

James Rodriguez, ein skærasta stjarna HM, segir að hann og liðsfélagar hans séu stoltir af árangri Kólumbíu á HM.

James leyfði sér að dreyma

James Rodriguez hefur slegið í gegn á HM í Brasilíu og verið í aðalhlutverki í mögnuðu kólumbísku landsliði.

Rodriguez: Draumur að spila fyrir Real Madrid

Kólumbíski knattspyrnumaðurinn James Rodriguez, leikmaður franska liðsins Monaco, sagði í samtali við spænska dagblaðið Marca að draumur hans væri að leika með Evrópumeisturum Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×