Fótbolti

James með nokkur tilboð á borðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
James og Ronaldo.
James og Ronaldo. vísir/getty
James Rodriguez, leikmaður Real Madrid, getur ekki svarað því hvort hann verði áfram hjá félaginu, og hugsanlega fer hann frá Evrópumeisturunum strax í janúar.

Rodriguez hefur fengið nokkur tilboð frá öðrum félögum en leikmaðurinn hefur aðeins komið við sögu í 14 leikjum í öllum keppnum með Real Madrid á tímabilinu. Í þeim leikjum skoraði hann eitt mark.

„Ég get ekki staðfest neitt, hvort ég verði áfram eða hvort ég fari. Ég hef fengið tilboð og þarf bara að hugsa þetta vel,“ segir hann í samtali við FourFourTwo.

„Ég er ánægður hjá Real Madrid en ég vill samt sem áður spila meira.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×