Bíó og sjónvarp

James May veldur usla í Suður-Afríku

Samúel Karl Ólason skrifar
Herþyrlur, árásarrifflar, Aston Martin og bensín. Hvað getur klikkað? Búið er að birta stiklu fyrir annan þátt The Grand Tour sem þeir Jeremy Clarkson, James May og Richard Hammond stýra. Næsti þáttur var tekinn upp í Suður-Afríku og miðað við stikluna voru mikil læti við tökur þar.

Í stiklunni, sem er einungis 30 sekúndur, má meðal annars sjá James May skjóta úr árásarriffli á bensínstöð, Richard Hammond virðist verða fyrir árás manns sem vopnaður er hnífi og Jeremy Clarkson „púllar“ Platoon.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×