James einu atkvæði frá því að fá fullt hús Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. maí 2013 22:00 LeBron James. Mynd/NordicPhotos/Getty
LeBron James fékk 120 af 121 mögulegu atkvæði í fyrsta sætið í kjörinu á mikilvægasta leikmanni NBA-deildarinnar á þessu tímabili en valið var tilkynnt formlega í kvöld. James átti möguleika að vera sá fyrsti sem vinnur þessi eftirsóttu verðlaun með fullu húsi stiga. Kevin Durant hjá Oklahoma City Thunder varð í öðru sæti í kjörinu en í þriðja sæti varð síðan Carmelo Anthony hjá New York Knicks. Atkvæðisrétt hafa fjölmiðlamenn sem fjalla um NBA-deildina í bandarískum fjölmiðlum. Shaquille O'Neal var fyrir þetta kjör sá sem hafði komist næst því að fá fullt hús en hann fékk 120 af 121 atkvæði í fyrsta sætið tímabilið 1999-2000. LeBron James er aðeins fimmti leikmaðurinn í sögunni til að vinna þessi verðlaun fjórum sinnum en hinir í klúbbnum eru þeir Kareem Abdul-Jabbar, Michael Jordan, Bill Russell og Wilt Chamberlain. Abdul-Jabbar er sá eini sem hefur eins og James náð því tvisvar sinnum að vera kosinn bestur tvö ár í röð. James átti magnað tímabil með liði Miami Heat sem náði langbestum árangri í deildarkeppninni. Hann var með 26,8 stig, 8,0 fráköst og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik og hitti úr 56 prósent skota sinna. Miami vann 66 af 82 leikjum og þar á meðal 27 leiki í röð sem er önnur lengsta sigurganga í sögu NBA-deildarinnar.
NBA Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Sjá meira