Lífið

James Corden reyndi að velta söngvara Queen úr sessi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Vísir/Skjáskot
Spjallþáttastjórnandinn James Corden, sem stýrir spjallþættinum Late Late Show sýndi fram á hreint magnaða sönghæfileika í vikunni sem er að líða þegar hann tókst á við söngvarann Adam Lambert um söngvarastöðuna í Queen.

Corden vildi meina að hann væri sjálfur mun betur til þess fallinn að syngja með Queen heldur en Lambert, sem nú gegnir stöðu söngvara í hljómsveitinni.

Lambert var ekki til í að taka undir það og því þurftu þeir félagar að takast á, í stórkostlegri söngkeppni með vinsælustu hljómsveit allra tíma. Þeir sýndu báðir ótrúlega takta. 

Þetta má enginn láta framhjá sér fara. 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×