Lífið

James Corden og Samuel L. Jackson í KR-heimilinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Samuel L. Jackson og James Corden tóku sig til á dögunum og fóru yfir virtan leiklistarferil Jackson.

Corden hefur gert þetta með nokkrum öðrum leikurum og hefur það alltaf vakið mikla athygli.

Sjá einnig: Jackson fer yfir ferilinn með James Corden

Atriðið vakti reyndar líka athygli vestur í bæ hér á höfuðborgarsvæðinu en KR-ingar þykjast kannast við körfuboltasalinn í myndbandinu. Þar má sjá B-salinn í KR-heimilinu eins og KR-ingar greina frá á Facebook.

Hér að neðan má sjá umrædda yfirferð þar sem sjá má körfuboltasal KR-inga bregða fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×