Körfubolti

Jakob sterkur í stórsigri

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob Örn í leik með Borås.
Jakob Örn í leik með Borås. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson átti mjög góðan leik fyrir lið sitt, Borås, í sænska körfuboltanum í kvöld.

Jakob Örn skoraði 12 stig, tók 7 fráköst og gaf 4 stoðsendingar í stórsigri liðsins, 87-66, á Norrköping Dolphins.

Borås komst á topp deildarinnar með sigrinum en þetta var leikur í fjórðu umferð deildarinnar. Borås er búið að vinna þrjá leiki og aðeins tapa einum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×