Körfubolti

Jakob öflugur í lykilsigri | Kanínurnar í stuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob í leik með Borås.
Jakob í leik með Borås. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson átti mjög flottan leik í liði Borås í kvöld er liðið vann mikilvægan sigur, 95-74, á Malbas í sænsku úrvalsdeildinni.

Deildarkeppnin er að klárast og hver sigur afar mikilvægur á lokasprettinum. Jakob skoraði 18 stig í kvöld og gaf þess utan þrjár stoðsendingar og tók tvö fráköst.

Íslendingaliðið Svendborg Rabbits er svo komið í 2-0 gegn Næstved í úrslitakeppninni í Danmörku en þar eru átta liða úrslit í gangi. Kanínurnar unnu 85-80 á heimavelli í kvöld og því í kjörstöðu.

Stefan Bonneau skoraði 22 stig fyrir Kanínurnar í kvöld og Axel Kárason 8 en Arnar Már Guðjónsson þjálfar liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×