Körfubolti

Jakob með miðið mjög illa stillt í tapleik

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson skoraði aðeins tvö stig í kvöld.
Jakob Örn Sigurðarson skoraði aðeins tvö stig í kvöld. mynd/borasbasket.se
Jakob Örn Sigurðarson, landsliðsmaður í körfubolta, átti slæman dag þegar lið hans Borås Basket tapaði á útivelli fyrir Luleå, 79-76.

Heimamenn voru fjórum stigum yfir í hálfleik, 40-36, og náðu að innbyrða sigurinn eftir spennandi lokamínútur.

Jakob Örn, sem er fyrirliði Borås, var með miðið mjög illa stillt í leiknum en hann skoraði aðeins tvö stig auk þess sem hann tók þrjú fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Jakob hitti úr einu af sjö skotum sínum en hann var einn af fjórum úr teignum og brenndi af öllum þremur þriggja stiga skotum sínum. Hann spilaði ríflega 31 mínútu í leiknum.

Borås er búið að vinna þrjá leiki og tapa tveimur en liðið er með sex stig eftir fimm umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×