Glamour

Jakkar í yfirstærð voru vinsælasta trendið í París

Ritstjórn skrifar
Það er hentugt að vera í stórum og hlýjum jakka á veturna.
Það er hentugt að vera í stórum og hlýjum jakka á veturna. Myndir/Getty
Tískuvikan í París kláraðist í seinustu viku þar sem fjöldi áhrifafólks innan tískubransans voru mætt á fremsta bekk. Það er búið að vera kalt í Evrópu seinustu vikur og því voru gestirnir vel klædd. Það var þó áberandi hversu vinsælt það var að klæðast  jökkum í yfirstærð. 

Við Íslendingar getum svo sannarlega sótt okkur innblástur hér fyrir neðan. Dúnúlpan er orðin ein mikilvægasta flíkin í fataskápnum. Þetta er bara spurning um hvernig þú stíliserar hana. 

Þessi jakki frá Balenciaga er búinn að vera vinsæll í vetur.
Alessandra Ambrasio var í stórum gervifeld.





×