Enski boltinn

Jafntefli hjá Herði á heimavelli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Björgvin í leik með Bristol.
Hörður Björgvin í leik með Bristol. vísir/getty
Hörður Björgvin Magnússon spilaði í 73 mínútur þegar Bristol gerði 1-1 jafntefli við Fulham í ensku B-deildinni.

Aleksandar Mitrovic kom Fulham yfir á 14. mínútu, en Bobby Reid jafnaði metin á 35. mínútu eftir undirbúing Josh Brownhill.

Ekki urðu fleiri mörk skoruð í leiknum, en Bristol er í sjötta sæti deildarinnar og hefur verið að fatast aðeins flugið. Fulham er sæti ofar með tveimur stigum meira.

Aron Einar Gunnarsson er enn á meiðslalistanum hjá Cardiff sem vann 1-0 útsigur á Ipswich. Cardiff er í öðru sætinu með 64 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×