Sport

Jafnt í þýska slagnum | Dramatík í Belgíu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Bentaleb berst við Stindl í leiknum í kvöld.
Bentaleb berst við Stindl í leiknum í kvöld. vísir/getty
Schalke og Borussia Mönchengladbach skildu jöfn 1-1 í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld en gestirnir frá Mönchengladbach eru eflaust sáttari eftir að hafa náð mikilvægu útivallarmarki í Gelsenkirkchen.

Jonas Hofmann kom gestunum yfir á 15. mínútu eftir góða sendingu inn fyrir vörn Schalke en austurríski framherjinn Guido Burgstaller jafnaði metin fyrir Schalke tíu mínútum síðar með glæsilegri afgreiðslu úr vítateigshorninu.

Er óhætt að segja að liðin hafi verið full varfærnisleg í leiknum í kvöld en báðir leikir liðanna í þýsku deildinni í vetur buðu upp á markaveislu og mátti sjá að leikmenn vildu ekki gera of mörg mistök.

Í Belgíu fengu áhorfendur nóg fyrir peninginn í 5-2 sigri Genk gegn löndum sínum í Gent. Ásamt sjö mörkum kom lét eitt rautt spjald dagsins ljós ásamt misnotaðri vítaspyrnu en það er óhætt að segja að Genk sé í góðri stöðu fyrir seinni leikinn með þriggja marka forskot og fimm útivallarmörk.

Í Frakklandi sneri Lyon taflinu við í seinni hálfleik og vann 4-2 sigur á Roma eftir að hafa lent 1-2 undir í fyrri hálfleik. Federico Fazio og Mohamed Salah komu Roma yfir með tveimur mörkum um miðbik fyrri hálfleiks en mörk frá Corentin Tolisso, Nabil Fekir og Alexandre Lacazette skiluðu Lyon sigrinum.

Þá skyldu Olympiakos og Besiktas jöfn í Grikklandi en Celta Vigo vann nauman sigur á gömlu félögum Ragnars Sigurðssonar í Krasnodar á heimavelli.

Úrslit kvöldsins:

Celta Vigo 2-1 Krasnodar

Gent 2-5 Genk

Lyon 4-2 AS Roma

Olympiakos Piraeus 1-1 Besiktas

Schalke 1-1 Borussia Mönchengladbach






Fleiri fréttir

Sjá meira


×