Fótbolti

Jafnt í Madrídarslagnum um Stórbikarinn eftir fyrri leikinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
James Rodríguez sló í gegn á HM.
James Rodríguez sló í gegn á HM. vísirgetty
Real Madrid og Atlético Madrid skildu jöfn, 1-1, í fyrri leik liðanna um Stórbikarinn á Spáni, árlegri viðureign Spánar- og bikarmeistaranna.

Kólumbíumaðurinn JamesRodríguez, sem sló í gegn á HM í Brasilíu í sumar, skoraði fyrir Real á 81. mínútu leiksins eftir undirbúning KarimsBenzema.

Ólsegir Spánarmeistarar Atlético lögðu ekki árar í bát heldur jöfnuðu metin tveimur mínútum fyrir leikslok. Þar var að verki miðjumaðurinn RaúlGarcia, 1-1.

Liðin mætast öðru sinni og þá á heimavelli Atlético, en samanlagður sigurvegari er meistari meistaranna á Spáni.

vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty
vísir/getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×