Fótbolti

Jafnt í Íslendingaslagnum | Arnór Ingvi ekki með vegna meiðsla

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Jón Guðni Fjóluson.
Jón Guðni Fjóluson. Vísir
Örebro og Norrköping skildu jöfn 2-2 í fyrsta leik dagsins í sænsku úrvalsdeildinni í dag en Arnór Ingvi Traustason gat ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla.

Jón Guðni Fjóluson lék allar nítíu mínúturnar í miðri vörninni hjá Norrköping en Hjörtur Logi Valgarðsson lék sömuleiðis allar 90. mínúturnar í vinstri bakverðinum hjá Örebro.

Maic Sema kom Örebro yfir á heimavelli á 18. mínútu en Emir Kujovic svaraði með tveimur mörkum fyrir lok fyrri hálfleiks og leiddu sænsku meistararnir í hálfleik.

Daniel Gustavsson tókst hinsvegar að bjarga stigi fyrir Örebro korteri fyrir leikslok þegar hann jafnaði metin en með því nær Örebro að halda í við topplið Norrköping eftir ellefu umferðir.

Þá gerðu Hacken og Kalmar 1-1 jafntefli á heimavelli Kalmar en liðin sitja í 10. og 11. sæti eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×