Handbolti

Jafnt hjá Kiel í Slóveníu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel.
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel. vísir/getty

Kiel gerði jafntefli, 23-23, við Celje Lasko í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta, en lokasekúndurnar voru heldur betur dramatískar.

Staðan var jöfn í hálfleik 14-14, en Kiel var komið þremur mörkum yfir, 20-17, þegar tæpar þrettár mínútur voru til leiksloka.

Heimamenn komu til baka og Blaz Janc kom Celje yfir tveimur mínútum fyrir leikslok. Rune Dahmke jafnaði þó metin 22 sekúndum fyrir leikslok og lokatölur 23-23.

Dahmke var markahæstur hjá Kiel með fimm mörk, en næstur kom Christian Dissinger með fjögur mörk. Hjá heimamönnum voru Sime Ivic og Blaz Janc markahæstir með fjögur mörk hvor.

Kiel er í fjórða sæti riðrilsins með níu stig, en Celje í því sjöunda með þrjú stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×