Fótbolti

Jafnt hjá íslensku markvörðunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hannes og félagar eru taplausir í síðustu fjórum leikjum sínum.
Hannes og félagar eru taplausir í síðustu fjórum leikjum sínum. vísir/getty
Nordsjælland og Randers gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik 6. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Það voru Íslendingar sem stóðu í rammanum hjá liðunum í dag. Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Nordsjælland og Hannes Þór Halldórsson stóð í marki Randers.

Mikkel Kallesöe kom Randers í 0-1 á 18. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Godsway Doyoh jafnaði svo metin á 64. mínútu og þar við sat.

Stigið er mikilvægt fyrir Nordsjælland sem var búið að tapa fjórum leikjum í röð með markatölunni 2-13. Rúnar Alex og félagar eru í 11. sæti deildarinnar með fjögur stig.

Randers er áfram í 4. sæti deildarinnar en lærisveinar Ólafs Kristjánssonar hafa ekki tapað frá því í 2. umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×